Hvort sem þú ert með 1 starfsmann eða 200 getum við séð um launavinnsluna fyrir þig. Þú sendir okkur í tölvupósti eða faxi tíma og einingar pr. starfsmann, fyrirframgreiðslur og annað er snertir starfsmanninn. Við sendum launaseðlana í pósti til viðkomandi starfsmanns eða til ykkar eftir óskum. Okkar reynsla er sú að best er að senda seðlana beint til viðkomandi starfsmanns. Öll laun lögð inn á reikning í banka. Við getum sent launaútborgunina rafrænt í banka sem skuldfærist á bankareikning þinn, eða á diskettu sem þú getur farið með í bankann þinn. Staðgreiðsla og tryggingagjald er sent rafrænt til ríkisskattstjóra. Birtist í einkabanka á vef þínum, undir „ógreiddir reikningar" sem krafa. Lífeyrissjóður og félagsgjöld koma vonandi mjög fljótlega á rafrænt form. Skilagreinar sendast til þín eða í banka til skuldfærslu eftir þínum óskum. Við sjáum líka um laun fyrir fyrirtæki sem eru ekki í bókhaldi hjá okkur. Laun eru þvílík trúnaðarmál innan fyrirtækis að þau sjá sér hag í því að fara með launin út úr fyrirtækinu. Launakerfi sem við notum: dk |


