Umsagnir
Umsagnir

Fyrirtækið Bókhaldsþjónusta Más s.f. var stofnað 3. mars 1986

Breytt í einkahlutafélag (ehf.) árið 1998 og nafni þess breytt í Bókhaldsþjónustan Viðvik ehf.

Bókhaldsþjónustan Viðvik ehf. er þjónustufyrirtæki á sviði bókhalds og uppgjörsmála, hvort sem er fyrir lítil eða stór fyrirtæki, einstaklinga, húsfélög og félagasamtök. Þjónustan byggir á langri reynslu af bókhaldsstörfum, svo og launavinnslu, og skrifstofu- og fjármálastjórn úr íslensku atvinnulífi allt frá árinu 1971.

Fyrirtækið var til húsa í Akurgerði 29 til ársins 1996 er það flutti í Síðumúla 1 þegar umsvifin jukust. Árið 2000 var húsnæðið að Síðumúla 1 orðið of lítið og fyrirtækið flutti í núverandi húsnæði í Skeifunni 4.

Í dag eru starfsmenn alls fjórir í fullu starfi allt árið.

Fyrirtækið leggur mikla áherslu á endurmenntun starfsmanna.